16október

Víha!!!

Ætli ég verði ekki að skrifa eitthvað svo hún systir mín hætti að skamma mig.. ;)... Nánar
16. október 2008 klukkan 15:13
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
6 athugasemdir
19ágúst

Lambið Snót!

Ef að lambið Sót hefði vitað að hún væri ætluð til átu þegar henni var hleypt úr fjárhúsinu hefði hún aldrei verið svona dugleg við að borða matinn sinn.  Hvars vegna sagði henni engin neitt?  Hún hefði ekki farið aftur heim þegar bóndinn kom upp í hlíð að sækja hana.  Hún hefði falið sig og lifað sínu lífi frjáls.  Hún væri þá enn á lífi að borða sitt gras, það vex ekki gras á skýjum, hvað borðar hún nú?
19. ágúst 2008 klukkan 09:34
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
4 athugasemdir
13ágúst

Loforð er loforð og loforð skal efna!!!

Lofaði minni ástkæru systir víst að skrifa nokkrar línur eftir þjóðhátíð þar sem ég gat það ekki fyrir hana vegna spennings..Svalur  En sumarið er búið að vera æðislegt hérna í Sandgerði og sólina hefur ekki vantað og hefur maður bara reynt að liggja í sólbaði milli vaxta og ná sér aðeins í tan því veturinn var búin að gera mig alveg helvíti hvíta...  Þetta sumar hefur verið allt of fljótt að líða og hefur ekki verið af verri endanum þó ég hafi sennilega aldrei stundað jafn lítið djamm yfir sumartímann frá því ég fór að djamma maður er einhvern vegin bara búin að vera að njóta sín með litlu kútunum hérna og það hefur sko ekki verið leiðinlegt... Fór reyndar austur þegar guðsonur minn var skírður 17. júní (þurfti að sleppa djammi á ak fyrir það) en ákvað að fara á ball á egs og efast ekki um að það hafi verið skemmtilegt ball en ég man ekkert eftir að hafa farið þangað og veit ég ekki hvernig hefði farið fyrir mér ef hún Steinunn hefði ekki komið mér til bjargar þar sem ég ákvað að drekk aðeins of mikið af vodka og þurfti að bera mig inn í húsið heima (ekki það gáfulegasta sem maður gerir daginn fyrir skírn)...  Vaknaði samt svona líka glimrandi hress daginn eftir og vissi ekki hvar ég væri stödd en áttaði mig svo á því að ég var í stofunni heima og vissi ekki meir mamma kom með 2 íbúfen og sturtaði þeim í mig og ég var bara nokkuð góð svoldið þreytt og svona smá ógleði að hrjá mann en það var nú ekkert til að tala um.. En þegar ég þurfti síðan að standa þarna fyrir framan alla í kirkjunni meðan verið var að skíra drenginn fannst mér kirkjugólfið riða frekar en það var víst bara ég sem vaggaði...  Hef ákveðið það að hér eftir verð ég edrú ef ég fer í skírn þar sem ég hoppaði ælandi út úr bíl eftir skírnina sem ég fór í í fyrra hjá Berg frænda.. Hissa
En já lífið í Sandgerði er búið að vera yndislegt og ég get ekki sagt að mér hefur leiðst að fylgjast með frændum mínum vaxa úr grasi Gabríel orðin ekkert smá stór og farin að tala geggjað mikið þó svo að ég heiti enþá Ingaga og Baldur orðin ekkert smá stór og farin að spjalla ekkert smá en ég hef verið hérna frá því hann kom heim af fæðingadeildinni og maður alveg fengið að fylgjast með öllu og veit hjálparhönd þegar henar er þörf...  Veit ekki hvernig ég á eftir að meika það að flytja í bæinn burt frá öllum hérna en Magga og Sævar hafa líka verið æði við mig og hugsa um mig sem sitt eigið barn nánast.. Hlæjandi 
Lítið hefur svo sem gerst í sumar er búin að vera að vinna á hjartadeild 14-E á lansanum og hefur það líka verið mjög gaman og ég mig langar varla að hætta en á bara 4 vaktir eftir...  Æðislegt fólk og æðislegur mórall og deildarstjórinn hrósaði mér geggjað mikið um daginn og það var ekkert smá gaman að fá smá hrós og vita að maður væri kannski að gera eitthvað rétt.. 
Það sem stendur þó upp úr sumrinu er Þjóðhátíð en hún stóð sko aldeilis fyrir sínu og skiptir engu máli þó lítið hafi verið djammað í sumar því það var sko tekið út í Eyjum..  Hitti líka fólk sem maður hefur ekki hitti í svoldin tíma og það var mjög gaman en ætla ekkert að vera að fara neitt nánar út í þá hátíð því það sem gerðist á þjóðhátið fer ekkert lengra.. Glottandi  Hefði þó verið skemmtilegra ef Dagný hefði verið meira með okkur.. Saknaði hennar svoldið þarna náði þó að tækla hana vel á föstudagskvöldinu.. heheh   En vil þó þakka stelpunum fyrir frábæra ferð þó svo endirinn hafi ekki verið mjög skemmtilegur en fannst biðin vera heldur löng eftir fluginu heim og ég var vel þreytt í vinnunni á þriðjudeginum eftir..

En nóg í bili best að fara að sofa fyrir vinnu í fyrramálið 4 vaktir eftir og svo upplestrar frí.. ;(  Hlakka ekkert smá til að fara að djamma í vetur með hjúkkunum..SvalurSvalur
13. ágúst 2008 klukkan 22:53
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
5 athugasemdir
11maí

Nýjar fréttir!!

Margt hefur gerst hjá mér síðan ég bloggaði síðast og er ég núna flutt í Sandgerði til Möggu frænku sem á nú tvo sæta stráka en það kom nýr á þriðjudagsmorgun og eru þau komin heim og er hann ekki smá sætur...

Svo núnaa á ég flullt af sætum frændum.. ;) 
Lífið hefur verið svona misjafnlega skemmtilegt og erfitt þessa dagana en það mun þó reddast og allt verður gott...
Á eitt próf eftir í skólanum í sem ég mun klára á miðvikudaginn og svo er það bara út til Eggerts á fimmtudagsmorgun með Kömmu frænku og þá verður sko stuð.. Svalur  Tímabilið kláraðist fyrr hjá Eggerti svo hann verður alveg búinn að spila og kominn í frí svo hann ætlar að gera allt sem við viljum með okkur..
Er svo að hugsa um hvað ég eiga að gera við sumarið mitt núna hvar á ég að vera og hvað á ég að gera???  Halda mig við upphafleg plön og vinna á hjartadeild eða hvað..?
11. maí 2008 klukkan 17:47
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
7 athugasemdir
01maí

Sætastur

Held að ég hafa ekki séð neitt eins krúttlegt um dagana.. ;)  Ég elska yngsa meðlim fjölskyldunnar út af lífinu og væri sko meira en til í að hitta litla frænda oftar..
Er sko lang sætastur.. Svalur
Hlakka ekkert smá til að fara austur þegar sá stutti verður skírður og knúsa hann og kyssa..

En nú er best að halda áfram að læra...  Lífeðlisfræðin búin og vonandi gekk bara vel en nú tekur fósturfræðin við...  Kláraði líka mína seinstu vakt á Grund í gær og var það sennilega erfiðasta vaktin mín til þessa þar sem ég var nú ekki mikið sofin og var alveg búin þegar ég kom heim og ætlaði alls ekki að geta vaknað í morgun.. Þögull sem gröfin

Þagað til næst.. Svalur 
15 dagar í Edinburgh... þá verður sko partýSvalur
01. maí 2008 klukkan 12:17
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
Almennt
6 athugasemdir
19apríl

Læra!!!

Það eina sem kemst að núna er að læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra, læra,
Ég elska copy paste Svalur
19. apríl 2008 klukkan 22:55
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
Engin athugasemd
18apríl

dagur 2

Jæja smá læripása í ritgerðinni sam ég á að skil á mánudag og ekkert gengur...  Vildi bara koma því á framfæri að ég eignaðist litinn frænda þann 29. febrúar sem er ekkert smá sætur og alveg eins og mamma sín... Hlæjandi (ánægð Berglín?)...  En af mér er alveg jafn lítið að frétta í dag eins og í gær styttist og stytist í prófin og ég fer að verða stressuð...  Verð þó að vinna í þessari blessuðu ritgerð minni um helgina og er komin stíf tímatafla sem þarf að fylgja svo ég geti farið á sportráðstefnu á sunnudaginn, en Jónína frænka hringdi í gær og bauð okkur að mæta og verður það bara skemmtilegt og fróðlegt...  
Held að þetta sé nóg í bili pásan búin svo ég er farin að skrifa meira..  Kemur í ljós hvað ég geri á morgun... Er síðan dauð eða get ég þetta?? 
18. apríl 2008 klukkan 15:03
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
Engin athugasemd
17apríl

Ekki alveg dauð!

Hef ákveðið að reyna að lífga þessa síðu mín við í síðasta skipti..Hlæjandi Eyddi öllum gömlum færslum nema tveim..Svalur það er svo langt síðan ég bloggaði síðast að ég man varla hvernig þetta er gert (enda meira en ár síðan) hehe...  Ekkert mikið er þó að frétta af mér annað en ég flutti í bæinn með Ólöfu og byrjaði í hjúkrunarfræði og enn í henni...  Nenni ekki að vera að fara yfir seinast árið en margt skemmtilegt gerðist og sumt leiðinlegt gerðist bara svona eins og öll önnur ár... 
Reyndar er það svoldið skrítið að flytja svona að heima og þurf að standa á eigin fótum alveg sjálfur...   Svo ætla ég að vera hérna í sumar og vinna á hjartadeild svo það er margt nýtt í gangi...Hlæjandi 
Ætla ekki að skrifa meira núna þar sem ég á að vera að gera verkefni og það styttist óðum í próf en eftir prófin ætlum ég, Ólöf og Kamma út til Eggerts í helgarferð og sjá svona eins og einn leik með honum og það verður mjög skemmtilegt og fróðlegt... Hlæjandi 
Þangað til næstSvalur
17. apríl 2008 klukkan 15:28
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
1 athugasemd
12nóvember

Eitt gamalt

Var aðeins að gramsa eins og ég er vön og fann þessa skemmtun sem ég setti saman í gamla daga og fór að hugsa að þetta á nokkuð oft við mig...  Stundum veit maður bara ekki neitt en það bjargast all á endanum...Svalur

Ég var ekki viss
En himininn sannfærði mig
Hvers vegna spurði ég
Og stjörnurnar svöruðu mér
En svo hitti ég þig
Þú blést í mig lífi
 
Og blæst enn og blæst
En ef þú blæst aðeins meira?
Spring ég? Hver hjálpar þá?
Hver veit nema kannski
Tunglið, sjórinn, sólin eða
Kannski bara mamma
Bíðum það kemur í ljósSvalur
12. nóvember 2006 klukkan 21:32
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
1 athugasemd
09nóvember

uhh stuð í íslensku...

Einus inni var lítils stelpa sem vildi fara í skóginn en mamma hennar vildi ekki leyfa henni það.  Stelpan ákvað þvi þegar hún vara orðin nógu stór til að vera ein heim og mamma hennar fór í búðina ákvað hún að hlaupa í skóginn.  En þar sem mamma hennar hafði aldið hana vel upp skildi hún eftir miða... Þegar hún koma í skóginn hélt hún svo áfram að hlaupa og hún hljóp og hljóp og hljót til móts við lífið og frelsið... Hún var frjáls frá fjötrum æskunnar og þvingunum móður sinnar hún sá að allt var mun betra í lífinu fyrir utan litla herbergisin hennar sem hún var búin að vera í í 16 löng ár en hún vissi ekki betur en hún átti heima þar....  Þegar hún fann vindin leika um sig vissi hún að það var ekki rétt... Hún hvarf á braut og og leit ekki til baka...  Þegar hún heyrði að mamma sín væri veik og gæti ekki lifað mikið lengur leit hún til baka hvað hafði hún gert...  Hún hljóp til baka og rétt náði að kyssa mömmu sína... en fann um leið að hún hefði sleppt henni og loksins var hún alveg frjáls....
09. nóvember 2006 klukkan 19:25
Ingibjörg Þuríður Jónsdóttir
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Útskrift